Jose Mourinho stýrði lærisveinum sínum í Tottenham áfram í Evrópudeildinni í kvöld.
Tottenham fór til Norður-Makedóníu og mætti Shkendija. Lokatölur voru 3-1 fyrir Spurs og skoruðu þeir Erik Lamela, Harry Kane og Son Heung-min mörkin.
Mourinho mætti út á völl fyrir leik og hann tók eftir því að það væri eitthvað bogið við mörkin á leikvanginum. Hann taldi þau vera of lítil.
Mourinho fékk starfsmenn UEFA til að mæla þau og kom í ljós að þau voru bæði 5 sentímetrum of lítil. Þau voru tekin niður og stækkuð áður en flautað var til leiks.
Meðfylgjandi er skemmtileg mynd.
😂 And here's Jose Mourinho proving the goals were too small! pic.twitter.com/EKpAW12KLr
— SPORF (@Sporf) September 24, 2020
Athugasemdir