Fotbolti.net
24.09.23 - 20:19
Ívan Guðjón Baldursson

Klopp mjög ánægður með sóknarleikinn

Klopp mjög ánægður með sóknarleikinn
Canon

Mynd: EPA

Jürgen Klopp er ánægður með stigin þrjú sem Liverpool fékk með flottum sigri gegn West Ham United í dag, þar sem Mohamed Salah tók forystuna með marki úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur.

Hamrarnir sýndu fína kafla í leiknum en Liverpool var sterkari aðilinn á vellinum og verðskuldaði sigurinn. Klopp er mjög sáttur með lærisveina sína.

„Við spiluðum mjög vel á köflum gegn virkilega erfiðum andstæðingum sem búa yfir nægum gæðum til að geta keppt við sterkustu liðin. Ég er mjög ánægður með frammistöðuna og mörkin sem við skoruðum, þetta voru frábær mörk," sagði Klopp.

„Við áttum góða kafla en við vorum aldrei við stjórn eins og við vildum. Það er augljóst að við gerðum einhver mistök en heilt yfir var þetta flott frammistaða. Við sköpuðum mikil vandræði fyrir þá með sóknarleiknum okkar og skoruðum magnað mark."

Klopp hrósaði að lokum Alisson Becker fyrir magnaða markvörslu í fyrri hálfleik og Darwin Nunez fyrir að skora glæsimark í þeim síðari.

Liverpool er í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 16 stig eftir 6 umferðir, tveimur stigum eftir toppliði Manchester City sem er með fullt hús stiga.

Klopp mjög ánægður með sóknarleikinn
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.