Fotbolti.net
24.10.12 - 20:24
Magnús Már Einarsson

Arnar Þór Valsson tekur við ÍR (Staðfest)

Arnar Þór Valsson tekur við ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: ÍR

Arnar Þór Valsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá ÍR en gengið var frá þessu í kvöld.

Arnar Þór skrifaði undir þriggja ára samning við ÍR-inga.
Arnar Þór er einn leikjahæsti leikmaður ÍR frá upphafi en hann lagði skóna á hilluna í júlí árið 2006. Í kjölfarið tók hann tímabundið við þjálfun liðsins út sumarið.

Nigel Quashie stýrði ÍR í síðustu leikjunum á nýliðnu tímabili en Arnar Þór og Jakob Hallgeirsson voru honum til aðstoðar.

Arnar Þór hefur nú tekið við liðinu en ÍR féll úr fyrstu deild niður í þá aðra á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.