Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 24. október 2020 12:30
Aksentije Milisic
Segir reglugerð vegna Covid orsaka erfiða byrjun Ziyech hjá Chelsea
Mynd: Getty Images
Hakim Ziyech hefur átt erfiða byrjun hjá Chelsea og spilar þar reglugerð vegna Covid-19 stóra rullu samkvæmt Frank Lampard, stjóra liðsins.

Ziyech gekk til liðs við Chelsea frá Ajax fyrir 33,3 milljónir punda síðasta sumar en hann meiddist á hné á undirbúningstímabilinu.

Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir liðið í 3-3 jafnteflinu gegn Southampton og kom inn af bekknum gegn Sevilla í Meistaradeild Evrópu í miðri viku.

„Það hefur verið mjög erfitt að koma honum af stað," sagði Lampard.

„Við erum með búbblu hér í Cobham svo við getum ekki spilað gegn unglingaliðinu og ekki fengið unga stráka yfir og spilað 11 gegn 11 á stórum velli. Þar viltu sjá leikmann vinna sem hefur ekki spilað í fimm eða sex mánuði."

Lampard segist þó sjá að Ziyech sé mjög hungraður í að standa sig vel fyrir liðið eftir erfiða byrjun.
Athugasemdir
banner
banner