Fotbolti.net
24.10.26 - 17:38
Ívan Guðjón Baldursson

Skemmtilegustu mánuðir lífsins hjá Þór: „Fannst eins og Helgi væri að refsa mér"

Auglýsing
Skemmtilegustu mánuðir lífsins hjá Þór: „Fannst eins og Helgi væri að refsa mér"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorri Ingólfsson, fæddur 2009, var hetjan þegar Þór bjargaði sér frá falli úr Bestu deildinni með sigri gegn FH í dag.
Lestu um leikinn: FH 1 - 2 Þór
Þorri skoraði bæði mörk Þórs í 1-2 sigri eftir að Akureyringar höfðu lent undir snemma leiks. Hann skóp þannig ótrúlega dýrmætan sigur, sem fellir á sama tíma nágrannana í KA niður í Lengjudeildina.

Þorri er hjá Þór á láni frá uppeldisfélaginu Víkingi R. og skoraði 4 mörk í 11 deildarleikjum á seinni hluta sumars.

„Við sýndum það gegn Stjörnunni að við höfum karakterinn til að koma til baka og ég hafði alltaf trú á verkefninu," sagði Þorri að leikslokum, eftir að hafa hrósað stuðningsmönnum Þórs í hástert sem voru mættir snemma á völlinn til að styðja sína menn áfram í upphituninni.

Þorri er ánægður með mörkin sín en ósáttur með að hafa ekki fengið dæmda vítaspyrnu í leiknum. Hann taldi sig eiga að fá tvær vítaspyrnur, en Helgi Mikael Jónasson dómari flautaði ekki.

„Ég er vel pirraður með báðar vítaspyrnurnar. Ég var eitthvað pirraður í byrjun og fannst svo eins og Helgi væri ósáttur við mig og að refsa mér eða eitthvað. Ég veit það ekki, mér fannst þetta fáránlegt en ég er sáttur með sigurinn.

„Það er liðið sem skilaði sigrinum í dag, við fengum bara eitt mark á okkur og ég er eiginlega bara heppinn í fyrsta markinu þegar ég fæ boltann bara í mig og inn."


Þorri viðurkennir að byrjunin hafi verið erfið í Þór en talar um síðustu mánuði sem þá skemmtilegustu í lífi sínu.

„Seinustu tveir mánuðir hafa verið skemmtilegustu tveir mánuðir jafnvel lífs míns. Það er geðveikt að vera á Akureyri og mér er búið að líða mjög vel."
Skemmtilegustu mánuðir lífsins hjá Þór: „Fannst eins og Helgi væri að refsa mér"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Skemmtilegustu mánuðir lífsins hjá Þór: „Fannst eins og Helgi væri að refsa mér"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.