Brazell himinlifandi að tímabilinu sé lokið: Vissi fyrir löngu síðan að ég myndi ekki halda áfram

Chris Brazell, þjálfari Vals

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Chris Brazell, þjálfari Vals

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er bara ánægður að tímabilið er lokið. Þetta er búið að vera erfitt fyrir mig persónulega og markmiðið var bara að klára þetta og halda liðinu enn í deildinni,'' segir Chris Brazell, þjálfari Vals, eftir 6-0 tap gegn Stjörnunni í loka umferð Bestu deildarinnar.
„Mér finnst þessi úrslit sýna vel hvernig klúbburinn hefur verið allt tímabilið. Mér finnst þó leikmennirnir ekki eiga þetta skilið og hafa þeir staðið sig vel seinustu vikur,''
Þetta var loka umferð deildarinnar og var Crhis spurður út í tímabilið hjá Val í heild sinni.
„Ég gæti skrifað heila bók, mikilvægasta fyrir mig er að sinna starfinu sem mér var gefið. Ég er að sjálfsögðu mér mínar persónulega skoðanir á hvernig hlutir fóru og mikið um vonbrigði en hverjum er ekki sama um það. Starfið mitt var að halda liðinu í deildinni og var það erfið áskorun,''
Chris var spurður út í hvort þetta væri hans seinasti leikur sem þjálfari Vals.
„Svo sannarlega, því að næsti þjálfari hefur verið ráðinn fyrir næsta tímabil. Nema við séum að fara spila næstu viku, sem ég vona ekki. Persónulega er ég mjög feginn að þessu sé lokið,''
Chris var spurður út í hvort hann haldi áfram að þjálfa á Íslandi.
„Já það geri ég. Ég bý hérna og á kærustu þannig það hefur aldrei verið spurning fyrir mig. Ég vissi fyrir löngu síðan að ég myndi ekki halda áfram í þessum klúbbi eftir þetta tímabil, sem gerði þetta starf erfitt fyrir mig,''
Það var mikið öskrað og púað á leikmenn og þjálfara Vals í hálfleik og eftir leikinn.
„Allir eiga rétt á sínum skoðunum en í klúbbi eins og þessum þá þurfa allir að stefna í sömu átt. Það þýðir ekki að stuðningsmenn geta ekki sagt skoðanir sínar,''
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
