Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 24. nóvember 2021 16:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Chilwell mögulega frá út tímabilið
Mynd: EPA
Ben Chilwell, vinstri vængbakvörður Chelsea, fór meiddur af velli í seinni hálfleik gegn Juventus í leik liðanna í Meistaradeildinni í gær. Chelsea valtaði yfir Juventus og vann öruggan 4-0 sigur.

Chilwell fann til í hnénu og er óttast að Chilwell hafi orðið fyrir meiðslum á fremra krossbandi.

Chilwell á að fara í myndatöku í dag og Chelsea mun í kjölfarið greina frá niðurstöðu myndatökunnar.

Ef rétt reynist að hann sé að glíma við einhvers konar krossbandameiðsli þá gæti hann verið frá út tímabilið vegna þeirra.

Chilwell hefur verið funheitur að undanförnu, eftir að hann vann sér sæti í Chelsea liðinu. „Ég hef áhyggjur af stgöðunni, hann var á svo frábæru skriði eins og Reece [James] á hinum vængnum," sagði Thomas Tuchel eftir leikinn í gær.

„Þeir voru báðir fullir sjálfstrausts og með mikil gæði. Chilwell var sárþjáður en líður betur núna. Hann verður skoðaður á morgun. Við vonum það besta og krossleggjum fingur að þetta séu ekki of alvarleg meiðsli."

Chilwell hefur skorað þrjú mörk og lagt upp eitt á tímabilinu. N'Golo Kante fór einnig af velli í gær vegna hnémeiðsla og er hann tæpur fyrir leikinn gegn Manchester United á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner