Fotbolti.net
24.12.18 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Ásgrimur Helgi tekinn við Álafossi (Staðfest)

Ásgrimur Helgi tekinn við Álafossi (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Ásgrímur Helgi Einarsson hefur verið ráðinn sem þjálfari KF Álafoss sem leikur í 4. deild.
Ásgrímur hefur talsverða reynslu úr þjálfun hér á landi en er um þessar mundir sölustjóri Benz á Íslandi.

Ásgrímur starfaði síðast hjá ÍR þar sem hann þjálfaði meistaraflokk kvenna. Hann hefur einnig þjálfað meistaraflokk kvenna hjá Fylki, Álftanesi, FH og Aftureldingu og þá var hann framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Stjörnunnar rétt fyrir síðustu aldamót.

Ásgrímur er margt til listanna lagt maður en hann var þjálfari íslenska keilulandsliðsins á HM í Abu Dhabi árið 2014.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.