24.12.18 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Haukur Ásberg gengur í raðir KH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kantmaðurinn fljóti Haukur Ásberg Hilmarsson er genginn í raðir KH sem leikur í 3. deild.
Haukur Ásberg er 23 ára gamall en hann hefur undanfarin ár leikið með Haukum í Inkasso-deildinni. Hann lék 12 deildarleiki síðasta sumar áður en hann fór ytra í skóla.
Haukur er uppalinn hjá Val. Hann á 18 leiki og þrjú mörk fyrir Íslandsmeistara Val. Nú snýr hann aftur á Hlíðarenda en til KH.
KH endaði í fimmta sæti 3. deildar síðasta sumar eftir að hafa lengi vel verið í baráttunni um að fara upp. Þetta var fyrsta tímabil liðsins í 3. deild.
Haukur Ásberg kemur til með að styrkja liðið verulega fyrir næsta sumar.