Fotbolti.net
24.12.18 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Magni fær tvo uppalda leikmenn aftur frá KA (Staðfest)

Magni fær tvo uppalda leikmenn aftur frá KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Magni

Magni var að ganga frá samningum við tvo unga og efnilega leikmenn sem koma aftur til félagsins eftir að hafa leikið með KA frá því í 4. flokki.
Leikmennirnir eru Ingólfur Birnir Þórarinsson og Þorsteinn Ágúst Jónsson. Þeir hafa skrifað undir tveggja ára samninga við Magna.

Báðir eru þeir uppaldir hjá félaginu en þeir fóru til KA er þeir voru í 4. flokki. Í fréttatilkynningu Magna kemur fram að, „samstarf Magna og KA í 2. flokki hefur verið að skila sér mjög vel síðustu ár, sjö uppaldir Grenvíkingar eru komnir til Magna í gegnum um flott samstarf félaganna."

Gott yngri flokkastarf Magna á síðustu árum er virkilega að bera árangur, á milli 20-30 ár eru síðan Magni var með svo marga unga heimamenn á sínum snærum.

Magni náði að bjarga sér frá falli í Inkasso-deildinni síðasta sumar og mun því leika áfram í þeirri deild næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.