Fotbolti.net
25.01.18 - 17:30
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Gabigol aftur til Santos (Staðfest) - Gekk ekkert í Evrópu

Gabigol er 21 árs.

Gabigol er 21 árs.

Canon

Mynd: Getty Images

Inter hefur lánað Gabriel Barbosa, betur þekktur sem Gabigol, aftur til Santos í heimalandi hans. Lánssamningurinn er til 31. desember.

Miklar vonir voru bundnar við Gabigol hjá Inter þegar hann gekk í raðir félagsins frá Santos 2016. Hann var keyptur fyrir rúmlega 30 milljónir evra.
Framherjanum unga hefur gengið illa að fóta sig í evrópskum fótbolta. Hann var lánaður til Benfica í Portúgal síðasta sumar en kom aðeins við sögu í einum leik áður en hann fór til baka til Inter fyrr í þessum mánuði.

Gabigol hefur spilað níu leiki með Inter en ekki fengið neinn byrjunarliðsleik í ítölsku A-deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.