Fotbolti.net
25.01.18 - 20:11
Ívan Guðjón Baldursson

Guido Carrillo kominn til Southampton (Staðfest)

Carrillo er ekki þekktur fyrir mikla markaskorun. Hann er einstaklega góður að búa til pláss og færi fyrir samherja.

Carrillo er ekki þekktur fyrir mikla markaskorun. Hann er einstaklega góður að búa til pláss og færi fyrir samherja.

Canon

Mynd: Getty Images

Southampton var rétt í þessu að staðfesta kaupin á argentínska sóknarmanninum Guido Carrillo.

Carrillo er 26 ára gamall og skrifar undir þriggja og hálfs árs samning við félagið sem sárvantar öflugan sóknarmann í sínar raðir.
Carrillo hóf ferilinn hjá Estudiantes og lék þar undir stjórn Mauricio Pellegrino, sem er í dag stjóri Southampton.

Sóknarmaðurinn kemur frá Mónakó, þar sem hann hefur gert 18 mörk í 93 leikjum á tveimur og hálfu ári.

Kaupverðið er ekki gefið upp á vefsíðu Southampton en það er talið vera í kringum 20 milljónir punda. Carrillo mun veita Charlie Austin, Shane Long og Manolo Gabbiadini samkeppni.

Southampton hefur ekki gengið vel á tímabilinu og er óvænt í fallsæti, með 22 stig eftir 24 umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.