Fotbolti.net
25.01.18 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Kristinn Justiniano í Sindra (Staðfest)

Kristinn í leik með Sindra sumarið 2015.  Hann er nú kominn aftur á Höfn.

Kristinn í leik með Sindra sumarið 2015. Hann er nú kominn aftur á Höfn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hanna Símonar

Kristinn Justiniano Snjólfsson hefur gengið til liðs við Sindra á Höfn í Hornafirði á nýjan leik frá Leikni Fáskrúðsfirði.

Kristinn er sóknarmaður sem skoraði tólf mörk með Sindra í 2. deildinni 2016 og var valinn í lið ársins í deildinni.
Í fyrra spilaði Kristinn með Leikni í Inkass-deildinni en þar skoraði hann þrjú mörk í 22 leikjum.

Kristinn er 24 ára gamall en hann lék áður með Hvöt, Drangey, Reyni Sandgerði og Tindastóli.

Sindri féll úr 2. deildinni síðastliðið sumar en reynsluboltinn Sinisa Valdimar Kekic tók við liðinu í vetur og mun stýra liðinu í 3. deildinni.
Kristinn í leik með Leikni síðastliðið sumar.

Kristinn í leik með Leikni síðastliðið sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.