Fotbolti.net
25.01.18 - 23:19
Ívan Guðjón Baldursson

Neven Subotic farinn til Frakklands (Staðfest)

Neven Subotic farinn til Frakklands (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Serbneski miðvörðurinn Neven Subotic er búinn að skrifa undir eins og hálfs árs samning við AS Saint-Etienne í Frakklandi.

Subotic var lykilmaður í liði Borussia Dortmund undir stjórn Jurgen Klopp og yfirgefur félagið eftir níu ára veru.
Subotic hefur verið að glíma við erfið meiðsli undanfarin ár og hefur aðeins komið við sögu í fjórum leikjum á tímabilinu.

Samningur Serbans við Dortmund hefði runnið út í sumar en félagið ákvað að leyfa honum að fara frítt.

„Ég vil þakka BVB af öllu hjarta fyrir síðustu níu ár. Við höfum upplifað allt mögulegt saman og þetta er tími sem ég mun alltaf geyma í hjartanu,\" segir í yfirlýsingu frá Subotic.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.