Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. janúar 2020 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Julien Laurens: Mbappe fer eftir tímabilið
Mbappe varð heimsmeistari með Frakklandi sumarið 2018.
Mbappe varð heimsmeistari með Frakklandi sumarið 2018.
Mynd: Getty Images
Franski fréttamaðurinn Julien Laurens starfar fyrir Le Parisien og hefur verið að sinna störfum fyrir BT Sport og ESPN í franska boltanum. Hann er mikilsvirtur í Frakklandi og býst hann við að Kylian Mbappe skipti um félag næsta sumar.

Mbappe er aðeins 21 árs gamall en er þegar talinn til bestu leikmanna heims. Hann er vafalítið efnilegasti leikmaður í heimi en vill róa á önnur mið eftir þrjú stórkostleg tímabil með PSG.

Það eina sem gæti verið því til fyrirstöðu er verðmiðinn, en Mbappe er verðmætasti leikmaður heims um þessar mundir og er ekki falur fyrir minna en 200 milljónir evra.

Framherjinn á ennþá tvö og hálft ár eftir af samningi sínum við PSG en vill ekki skrifa undir nýjan samning þrátt fyrir tilraunir stjórnenda félagsins.

Síðustu tvö tímabil er Mbappe með 46 mörk í 43 deildarleikjum. Hann skoraði 13 í 27 leikjum á sínu fyrsta tímabili þegar hann var enn táningur.

Laurens segir ýmis félög koma til greina fyrir Mbappe en Real Madrid er líklegasti áfangastaðurinn.

Sjá einnig:
Mbappe vill feta í fótspor Ronaldo
Athugasemdir
banner
banner