Heiða Ragney Viðarsdóttir er gengin í raðir Stjörnunnar frá Þór/KA en þetta kemur fram í tilkynningu frá Garðabæjarfélaginu í kvöld.
Heiða Ragney er 25 ára gömul og leikur yfirleitt sem djúpur miðjumaður en hún nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við Þór/KA undir lok síðasta árs.
Hún á 91 leik og 3 mörk að baki fyrir Þór/KA og reyndist liðinu afar vel en hún lék alla leiki liðsins er það hafnaði í 7. sæti Pepsi Max-deildarinnar á síðustu leiktíð.
Heiða hefur nú skrifað undir samning við Stjörnuna og mun því leika með liðinu næstu árin.
Kristján Guðmundsson, þjálfari liðsins, er að vinna í því að bæta við hópinn en Chante Sherese Sandiford kom til félagsins frá Haukum á dögunum.
Athugasemdir