Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 25. janúar 2021 09:32
Magnús Már Einarsson
Stóri Sam reynir að fá Benteke
Mynd: Getty Images
WBA er í viðræðum við Crystal Palace um að fá framherjann Christian Benteke í sínar raðir.

Sam Allardyce, stjóri WBA, er á fullu að vinna í að styrkja hópinn fyrir fallbaráttuna framundan.


Framherji er efstur á óskalista en WBA hefur einnig verið að skoða Mbaye Diagne hjá Galatasaray, Cenk Tosun hjá Everton, Joshua King hjá Bournemouth og Ishak Belfodil hjá Hoffenheim.

Crystal Palace er tilbúið að hlusta á tilboð í Benteke eftir að hafa klófest Jean-Philippe Mateta frá Mainz.

Benteke hefur skorað þrjú mörk í þrettán leikjum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili en samningur hans hjá Crystal Palace rennur út í sumar.
Athugasemdir
banner
banner