Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. janúar 2023 20:18
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Rashford hljóp frá sínum vallarhelmingi og stakk sér á milli varnarmanna
Marcus Rashford er í ham á þessari leiktíð
Marcus Rashford er í ham á þessari leiktíð
Mynd: EPA
Það virðist ekki hægt að stöðva Marcus Rashford, framherja Manchester United, þessa dagana en hann var að koma liðinu í 1-0 gegn Nottingham Forest á City Ground.

Liðin eigast við í fyrri undanúrslitaleiknum í enska deildabikarnum en það tók Rashford aðeins sex mínútur að skora.

Hann fékk boltann á sínum vallarhelmingi, hljóp upp vinstri vænginn áður en hann stakk sér á milli tveggja varnarmanna og þrumaði boltanum í nærhornið.

Glæsilegt mark hjá enska landsliðsmanninum en mark hans má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hjá Rashford
Athugasemdir
banner
banner