Chelsea hefur boðið framherjanum Khadija Shaw einn stærsta samning í sögu kvennafótboltans, en þetta segir Athletic í dag.
Shaw er 29 ára gömul og mála hjá Manchester City, en samningur hennar rennur út í sumar.
Samkvæmt Athletic er mikil barátta um Shaw, en besta tilboðið kemur frá Chelsea sem er reiðubúið að gera hana að einni launahæstu fótboltakonu heims.
Miðillinn segir launapakkann hljóða upp á eina milljón punda, en Shaw vill þó helst af öllu vera áfram hjá Man City þó félagið hafi ekki enn jafnað tilboð Chelsea.
Kaupverð leikmanna er að hækka í kvennafótboltanum og höfum við séð það fara yfir milljón punda þröskuldinn, en það er enn sjaldgæft að sjá launapakka leikmanna fara yfir þann þröskuld.
Trinity Rodman fékk stærsta samning sem sést hefur í kvennafótboltanum þegar hún skrifaði undir hjá Washington Spirit í janúar, en þar þénar hún 1,4 milljón punda.
Shaw, sem kemur frá Jamaíka, hefur verið einn besti framherji heims síðustu ár eða síðan hún kom frá Bordeaux árið 2021. Á þessum fimm árum hefur hún skorað 109 mörk í 131 leik og tvisvar verið markahæst í WSL-deildinni.



