Fotbolti.net
25.05.19 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson

Stuðningsmenn Tranmere mættu með Mike Dean grímur

Stuðningsmenn Tranmere mættu með Mike Dean grímur
Canon

Mynd: Getty Images

Úrvalsdeildardómarinn Mike Dean er mikill stuðningsmaður Tranmere Rovers og keppti liðið úrslitaleik umspils D-deildarinnar fyrr í dag. Hann var að sjálfsögðu mættur á Wembley til að fylgjast með leiknum.
Hann var einnig á vellinum er Tranmere sigraði Forest Green í undanúrslitum og sáust einlæg fagnaðarlæti hans í beinni útsendingu Sky Sports frá leiknum. Myndbandinu hefur verið deilt tugþúsund sinnum á samfélagsmiðlum.



Í dag átti Tranmere leik við Newport County og hafði betur, með dramatísku sigurmarki á 119. mínútu. Dean náðist aftur á myndband við að fagna sigurmarkinu.



Það sem fangaði þó mesta athygli voru aðrir stuðningsmenn Tranmere sem mættu á völlinn með grímur fyrir andlitinu. Grímur af Mike Dean.










Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.