25.07.02 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Carbone farinn frá Bradford (Staðfest)
Benito Carbone létti í dag á peningaáhyggjum Bradford með því að ganga til liðs við ítalska Seria A liði Como. Gianni Paladini umboðsmaður Carbone sagði í dag að þeir væru að reyna að ná samkomulagi við Bradford um peninginn sem Bradford skuldar honum en hann vill samt ekki að félagið verði gjaldþrota. Í dag sagði Nicky Law stjóri liðsins að 40 þúsund punda vikulaun kappans væru að sliga félagið en Paladini sagði að fjárhagsörðuleikar félagssins væru ekki Carbone að kenna, það hafi verið mistök í upphafi að gefa Carbone þetta há laun. Að lokum sagði hann Bradford mönnum að hafa ekki áhyggjur, hann vonaðist til að þeir kæmust aftur í úrvalsdeildina en þá verða þeir að passa sig. Bradford gæti lent í að vera dæmdir úr keppni verði þeir ekki búnir að finna lausn á fjárhagsvandanum fyrir 8.ágúst.
