25.07.12 - 17:00
Elvar Geir Magnússon
Sigmundur Kristjánsson í Þrótt (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson

Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson
Sigmundur Kristjánsson hefur tekið fótboltaskóna úr hillunni og fengið félagaskipti í uppeldisfélag sitt Þrótt.
Sigmundur er fæddur 1983 og átti heima í Danmörku en er fluttur aftur til Íslands. Síðast spilaði hann fyrir Þrótt 2008 en þá lék hann 14 leiki með liðinu í efstu deild.

2004-2007 lék hann með KR í Landsbankadeildinni.
Sigmundur er ekki í sínu besta standi en gæti reynst Þrótturum góður styrkur á lokasprettinum. Þróttur er komið í undanúrslit bikarsins þar sem liðið mætir Stjörnunni en verr hefur gengið í 1. deildinni þar sem liðið er einu stigi frá fallsæti.