25.07.12 - 20:44
Elvar Geir Magnússon
Nichlas Rohde í Breiðablik (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Samkvæmt frétt á stuðningsmannavef Breiðabliks mun liðið fá danska sóknarmanninn Nichlas Rohde lánaðan. Kemur hann frá FC Nordsjælland og verður í herbúðum Blika út tímabilið.
Breiðablik er að styrkja sóknarleik sinn en liðið hefur aðeins gert 10 mörk í 12 leikjum í Pepsi-deildinni.
Rohde er 20 ára og var markahæstur hjá U19 liði Nordsjælland tímabilið 2010-11. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið eftir að hafa komið inn sem varamaður í leik gegn Silkeborg í ágúst í fyrra. Í fyrra skrifaði hann undir þriggja og hálfs árs samning við Nordsjælland.
Ben Everson kom til Breiðabliks frá Tindastóli í síðustu viku er byrjaður að æfa á fullu og verður klár í slaginn fyrir leik gegn ÍBV á sunnudaginn kemur.
Ákveðið var að semja ekki við þýska miðjumanninn Maximilian Knuth en honum tókst ekki að heilla á þeim æfingum sem hann tók þátt í með Breiðabliki.
Orðrómur hefur verið í gangi um að Breiðablik ætli sér að senda Petar Rnkovic heim en hann hefur ekki staðið undir væntingum og var ekki í leikmannahópnum í síðasta leik, 1-1 jafntefli gegn ÍA.

Heimild: Blikar.is