Fotbolti.net
25.08.12 - 13:44
Hafliði Breiðfjörð

Margrét Lára Viðarsdóttir til Kristianstad (Staðfest)

Margrét Lára er komin til Kristianstad að nýju.

Margrét Lára er komin til Kristianstad að nýju.

Canon

Mynd: damfotboll.se

Kvennaboltinn
Landsliðsframherjinn Margrét Lára Viðarsdóttir er gengin til liðs við sænska félagið Kristianstad að nýju en þetta staðfesti hún við Fótbolta.net í dag.
Margrét Lára samdi við Kristianstad út árið 2013 en þetta er í annað sinn sem hún gengur til liðs við félagið.

Margrét Lára lék með þýska liðinu Potsdam síðasta vetur og varð þýskalandsmeistari með liðinu í maí síðastliðnum en hún skoraði eitt mark í 8-0 sigri á Leipzig í lokaleiknum þegar þær tryggðu sér sigur í deildinni.

Hún kom til Potsdam í október í fyrra en fram að því hafði hún leikið í þrjú ár með Kristianstad sem hún gengur nú til liðs við að nýju.

Hjá Kristianstad hittir hún fyrir Elísabetu Gunnarsdóttur sem þjálfar liðið en þrír íslenskir leikmenn eru þar einnig, Sif Atladóttir, Guðný Björk Óðinsdóttir og Katrín Ómarsdóttir.

Kristianstad er í fjórða sæti sænsku deildarinnar eftir 14 leiki af 22. Þær eru átta stigum frá toppsætinu. Sænska deildin lýkur í byrjun nóvember.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.