25.08.12 - 20:32
Brynjar Ingi Erluson
Nuri Sahin til Liverpool (Staðfest)

Mynd: Heimasíða Liverpool

Mynd: Heimasíða Liverpool
Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur fengið tyrkneska miðjumanninn Nuri Sahin á láni frá Real Madrid út tímabilið.
Sahin, sem er 23 ára gamall kom til Real Madrid frá Borussia Dortmund síðasta sumar, en honum tókst ekki að festa sig í sessi hjá spænska liðinu á síðustu leiktíð og var því ákveðið að lána hann.
Talið var að hann væri á leið til Arsenal, en Liverpool komst í bílstjórasætið á dögunum og var gengið frá samningum í dag. Hann stóðst læknisskoðun fyrr í dag og hafa nú skiptin verið staðfest.
Hann mun leika í treyju númer 4 hjá Liverpool, en síðast lék Raul Meireles í þeirri treyju og þar á undan Alberto Aquilani.
Þetta er fjórði leikmaðurinn sem Brendan Rodgers, stjóri Liverpool fær til félagsins, en þegar hefur hann fengið Fabio Borini, Joe Allen og Oussama Assaidi.

Heimild: Heimasíða Liverpool