Fotbolti.net
25.08.18 - 19:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Karius farinn til Tyrklands á tveggja ára samningi (Staðfest)

Karius farinn til Tyrklands á tveggja ára samningi (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Þýski markvörðurinn Loris Karius er búinn að ganga frá tveggja ára lánssamningi við Besiktas í Tyrklandi.
Besiktas birti mynd af Karius á Twitter í gær og virtist þar með staðfesta félagaskiptin. Félagskiptin voru hins vegar ekki formlega staðfest fyrr en núna fyrir nokkrum mínútum.

Karius spilaði 33 leiki með Liverpool á síðasta tímabili en eftir slæm mistök í úrslitaleik Meistaradeildarinnar ákvað félagið að kaupa hinn brasilíska Alisson í markið í sumar. Alisson hefur staðið sig vel til að byrja með og hefur ekki enn fengið á sig mark í ensku úrvalsdeildinni.

Besiktas seldi markvörðinn Fabri til Fulham í sumar og hefur verð í leit að nýjum markverði. Karius, sem er 25 ára, á að fylla skarð hans.

Besiktas endaði í fjórða sæti tyrknesku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.