Fotbolti.net
25.08.18 - 10:31
Ívan Guðjón Baldursson

Yannick Bolasie til Aston Villa (Staðfest)

Bolasie hefur skorað 11 úrvalsdeildarmörk í 119 leikjum.

Bolasie hefur skorað 11 úrvalsdeildarmörk í 119 leikjum.

Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa er búið að krækja í kantmanninn öfluga Yannick Bolasie á lánssamning út tímabilið.
Bolasie er 29 ára gamall og hefur spilað fyrir Crystal Palace og Everton síðustu sex ár. Hann er samningsbundinn Everton næstu þrjú árin.

Bolasie er þekktur fyrir mikinn hraða og tækni en hann hefur aldrei verið mikill markaskorari, nema fyrir landslið Kongó þar sem hann skorar í fjórða hverjum leik.

Bolasie var byrjunarliðsmaður hjá Palace og hjálpaði félaginu að fara upp úr Championship tímabilið 2012-13. Hann verður því góður liðsauki fyrir Aston Villa sem er að reyna að komast aftur upp í úrvalsdeildina.

Það verður áhugavert að fylgjast með Bolasie og Birki Bjarnasyni leika saman í haust. Flestir búast við að Villa verði í umspilsbaráttunni líkt og á síðasta tímabili.

#BOLASIEANNOUNCED 🤫 pic.twitter.com/Jx4LhdL4bX

— Aston Villa FC (@AVFCOfficial) August 25, 2018


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.