Fotbolti.net
25.09.12 - 12:00
Fótbolti.net

Íslenskur slúðurpakki

Rúnar Már er orðaður við FH og ÍBV.

Rúnar Már er orðaður við FH og ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Þá er komið að fyrsta slúðurpakkanum úr íslenska boltanum í haust. Í slúðurpakkanum kemur fram helsti orðrómurinn sem gengur í bænum en við ítrekum að þetta er bara orðrómur, ekkert er staðfest fyrr en frétt með fyrirsögn sem hefur orðið (Staðfest) innan sviga birtist hér á Fótbolta.net.

Félög mega ræða strax við leikmenn með samþykki núverandi félags þeirra en leikmenn sem renna út á samningi á árinu eða um áramót má byrja að ræða við beint 16. október og þá þarf ekki að ræða við núverandi félag leikmannsins.

Slúðurpakkinn er einungis til að hafa gaman af og ef menn hafa ábendingar varðandi pakkann eða um slúður hafið þá samband á [email protected].
FH: Óvíst er hvort Gunnleifur Gunnleifsson verði áfram hjá FH-ingum en vinstri bakvörðurinn Danny Thomas hefur áhuga á að vera áfram hjá Fimleikafélaginu. Atli Viðar Björnsson er samningslaus og nokkur félög hafa sýnt honum áhuga. Jón Daði Böðvarsson er á óskalista FH og Ingimundur Níels Óskarsson gæti gengið í raðir liðsins frá Fylki en FH hefur áður sýnt honum áhuga. Margar leigubílstjórasögur eru í gangi í Kaplakrika en Rúnar Már Sigurjónsson, Sam Hewson og Sam Tillen hafa líka verið orðaðir við félagið.

ÍBV: Tryggvi Guðmundsson er samningslaus og útlit er fyrir að hann fari frá ÍBV þrátt fyrir að vinur hans Hermann Hreiðarsson sé tekinn við liðinu. Fleiri sterkir póstar eru samningslausir og þar á meðal er Rasmus Christiansen sem gæti verið á förum. Guðmundur Þórarinsson ætlar að reyna fyrir sér erlendis og óvissa er með danska framherjann Christian Olsen sem gæti hætt í fótbolta. Aaron Spear hefur snúist hugur og vill vera áfram hjá ÍBV eftir að Hermann tók við liðinu. Rúnar Már Sigurjónsson leikmaður Vals er einnig orðaður við Eyjamenn.

Stjarnan: Sögur hafa verið á lofti um að Bjarni Jóhannsson gæti hætt með Stjörnuna eftir fimm ár hjá félaginu en Þorlákur Árnason þjálfari kvennaliðsins hefur verið orðaður við stöðuna. Mark Doninger er samningslaus og óvíst er með framtíð hans. Veigar Páll Gunnarsson gæti gengið til liðs við sitt gamla félag um áramót og Jón Daði Böðvarsson, leikmaður Selfyssinga, gæti líka farið í Garðabæinn.

Breiðablik: Nigel Quashie gæti verið á leið til Blika sem spilandi aðstoðarþjálfari. Damir Muminovic leikmaður Leiknis er líklega á leið til Breiðabliks. Óskar Pétursson markvörður Grindvíkinga er líka orðaður við Blika sem og Mark Tubæk hjá BÍ/Bolungarvík og Selfyssingarnir Stefán Ragnar Guðlaugsson og Viðar Örn Kjartansson. Markvörðurinn Sigmar Ingi Sigurðarson er hugsanlega á förum frá liðinu.

KR: Jón Daði Böðvarsson leikmaður Selfyssinga er orðaður við KR-inga sem og Rasmus Christiansen fyrirliði ÍBV og Stefán Ragnar Guðlaugsson fyrirliði Selfyssinga. Fjalar Þorgeirsson, gæti yfirgefið KR-inga en hann getur losnað undan samningi eftir tímabilið. Brynjar Björn Gunnarsson er orðaður við heimkomu í KR eins og oft áður.

Fylkir: Ingimundur Níels Óskarsson neitar að ræða við Fylki um nýjan samning því hann hefur tekið stefnuna á að ganga til liðs við FH. Þórður Birgisson framherji KF, Andri Rúnar Bjarnason framherji BÍ/Bolungarvíkur og Illugi Þór Gunnarsson fyrirliði Fjölnis eru orðaðir við Fylki.

ÍA: Skagamenn virðast vera í framherjaleit en Viðar Örn Kjartansson er sterklega orðaður við félagið. Atli Viðar Björnsson, Þórður Birgisson og Andri Rúnar Bjarnason eru einnig orðaðir við Skagamenn.

Valur: Kristján Guðmundsson mun nánast pottþétt hætta með Val eftir tímabilið. Willum Þór Þórsson er orðaður við endurkomu á Hlíðarenda og þá jafnvel með Guðmund Benediktsson eða Sigurbjörn Hreiðarsson sér við hlið. Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Tindastóls, hefur einnig óvænt verið orðaður þjálfarastöðuna sem og Þorvaldur Örlygsson. Lykilmenn eins og Rúnar Már Sigurjónsson og Haukur Páll Sigurðsson gætu yfirgefið Val og þá gæti félagið einnig leyft mönnum eins og Ásgeiri Þór Ingólfssyni, Ásgeiri Magnússyni, Matarr Jobe, Úlfari Hrafni Pálssyni og Þóri Guðjónssyni að fara. Viðar Örn Kjartansson er á óskalista Vals eins og fleiri félaga sem og Atli Viðar Björnsson, Andri Rúnar Bjarnason leikmaður BÍ/Bolungarvíkur og Sigurður Egill Lárusson leikmaður Víkings R.

Keflavík: Ekki búist við miklum breytingum hjá Keflavík sem heldur áfram að byggja upp nýtt lið. Óvissa með Guðmund Steinarsson en aðrir eldri leikmenn liðsins halda væntanlega áfram. Hilmar Þór Hilmarsson gæti komið til Keflavíkur frá Stjörnunni og Sigurgeir Sveinn Gíslason varnarmaður BÍ/Bolungarvíkur er einnig orðaður við félagið.

Fram: Þorvaldur Örlygsson mun líklega hætta með Fram eftir tímabilið. Atli Eðvaldsson er orðaður við starfið sem og Gunnlaugur Jónsson og Zoran Miljkovic. Þá er orðrómur um að Willum Þór Þórsson og Guðmundur Benediktsson gætu tekið saman við liðinu Erlendu leikmennirnir gætu allir yfirgefið Fram og þá hafa félög áhuga á Hlyni Atla Magnússyni. Illugi Þór Gunnarsson, fyrirliði Fjölnis, er á óskalista Fram sem og Andri Steinn Birgisson miðjumaður Leiknis.

Selfoss: Óvíst er hvort Logi Ólafsson muni halda áfram með Selfyssinga eða ekki. Jón Daði Böðvarsson er á förum frá Selfyssingum en erlend og íslensk félög hafa áhuga á honum. Babacar Sarr er líklega einnig á leið í erlent félag. Ef Selfyssingar falla mun Viðar Örn Kjartansson róa á önnur mið. Atli Heimisson, framherji Vals, er orðaður við Selfyssinga og einnig markvörðurinn Sindri Snær Jensson.

Grindavík: Ekki er ljóst hvort Guðjón Þórðarson verði áfram með Grindvíkinga en báðir aðilar eiga kost á að losna undan samningi eftir 1. október. Grindvíkingar eru sagðir hafa rætt við Bjarna Jóhannsson um að taka aftur við liðinu. Eysteinn Húni Hauksson, þjálfari Hattar, gæti tekið við Grindvíkingum ef Guðjón fer. Milan Stefán Jankovic er einnig orðaður við stöðuna.

Þór: Launakröfur markvarðarins Joshua Wicks eru háar og óvíst er hvort hann verði áfram hjá Þórsurum. Mark Tubæk er á leið til Þórs frá BÍ/Bolungarvík og þá er Jóhann Þórhallsson enn og aftur orðaður við heimkomu frá Fylki. Atli Sigurjónsson, miðjumaður KR, gæti einnig gengið aftur í raðir Þórs. Halldór Hermann Jónsson, miðjumaður Fram, er einnig á óskalista nýliðanna sem og Atli Viðar Björnsson.

Víkingur Ólafsvík: Ólafsvíkingar hafa boðið Gunnleifi Gunnleifssyni tveggja ára samning en hann á ættir að rekja á Snæfellsnesið. Srjdan Rajkovic markvörður Þórs hefur líka verið orðaður við félagið. Ólafsvíkingar vilja fá Þorstein Má Ragnarsson og Brynjar Gauta Guðjónsson ,,heim“ en ólíklegt er að það takist. Ólafsvíkingar hafa áhuga á Farid Zato miðjumanni HK og þá vilja þeir einnig fá Hilmar Þór Hilmarsson frá Stjörnunni.

Þróttur: Fjalar Þorgeirsson er orðaður við sína gömlu félaga í Laugardalnum. Tryggvi Guðmundsson hefur æft með Þrótti og möguleiki er á að félagið reyni að krækja í hann.

KA: Þjálfarastaðan hjá KA er laus og ýmis nöfn heyrast þar. Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar er mest orðaður við starfið en Kristján Guðmundsson, Magnús Gylfason, Þorvaldur Örlygsson, Lárus Orri Sigurðsson hjá KF og Dragan Stojanovic hjá Völsungi hafa einnig verið nefndir til sögunnar. Þá hefur Halldór Jón Sigurðsson þjálfari Tindastóls sótt um starfið. Jóhann Þórhallsson, framherji Fylkis er orðaður við KA.

Haukar: Útlit er fyrir að Ólafur Jóhannesson haldi áfram með Hauka. Sverrir Garðarsson og Guðmundur Sævarsson gætu farið í Pepsi-deildina. Hilmar Geir Eiðsson og Grétar Atli Grétarsson gætu komið aftur til Hauka frá Keflavík.

Víkingur R.: Hjalti Már Hauksson fer frá Víkingum, eins og Egill Atlason sem hefur þegar tilkynnt að hann fari. Félagið ætlar að reyna að fá Fjalar Þorgeirsson og Viktor Bjarka Arnarsson úr KR og Ólaf Hrannar Kristjánsson og Kristján Pál Jónsson úr Leikni. Þá kemur Björgólfur Takefusa til baka úr láni frá Fylki og verður með Víkingum næsta sumar.

Fjölnir: Bakvörðurinn knái Pablo Punyed er líklega á förum. Miðvörðurinn ungi Bergsveinn Ólafsson gæti einnig yfirgefið Fjölnismenn en félög í efstu deild hafa sýnt honum áhuga. Tryggvi Guðmundsson hefur æft með Fjölni líkt og Þrótti og Grafarvogsliðið gæti reynt að krækja í hann auk þess sem Ingólfur Sigurðsson gæti farið í Grafarvoginn en hann er á heimleið úr atvinnumennsku.

BÍ/Bolungarvík: Jörundur Áki Sveinsson mun þjálfa skástrikið áfram en Vestfirðingar eru í leit að markmanni til að fylla skarð Þórðar Ingasonar sem er á förum. Srjdan Rajkovic markvörður Þórs hefur verið nefndur til sögunnar þar. Haukur Ólafsson er einnig á förum frá Vestfirðingum. Loic Ondo gæti hins vegar verið á leið aftur á Vestfirði frá Grindavík.

Leiknir R.: Óvíst er hver mun þjálfa Breiðhyltinga en Freyr Alexandersson aðstoðarþjálfari Vals gæti tekið við sínu gamla félagi. Damir Muminovic er á förum og líklega Andri Steinn Birgisson líka.

Völsungur: Guðmundur Óli og Hallgrímur Mar Steingrímssynir gætu komið aftur í Völsung frá KA sem og Bjarki Baldvinsson. Aksentije Milisic gæti einnig farið í Völsung frá KA.

HK: Miðjumaðurinn Farid Zato er eftirsóttur og þá gæti Birgir Magnússon farið í efri deildir en hann skoraði mikið í annarri deildinni í sumar.

KV: Félagið hyggur á ennþá meira samstarf við KR um lán á leikmönnum. Gætu einnig fengið leikmenn úr efri deildum.

Afturelding: Óvíst er hver mun þjálfa Mosfellinga næsta sumar. Írski varnarmaðurinn John Andrews er líklega búinn að leggja skóna á hilluna.

Dalvík/Reynir: Leit er hafin að nýjum þjálfara hjá Dalvík/Reyni og menn eins og Jóhann Hreiðarsson og Ragnar Hauksson hafa verið orðaðir við stöðuna. Þá hefur Þorvaldur Örlygsson þjálfari Fram óvænt verið orðaður við Dalvík/Reyni.

Grótta: Guðmundur Benediktsson er orðaður við þjálfarastöðuna á Seltjarnarnesi sem og Freyr Alexandersson aðstoðarþjálfari Vals.

Fjarðabyggð: Þjálfaraleit stendur yfir hjá Fjarðabyggð og mörg nöfn eru í umræðunni. Jón Aðalsteinn Kristjánsson þjálfari Þróttar í Vogum, Ólafur Brynjólfsson þjálfari Augnabliks og Sinisa Valdimar Kekic leikmaður Sindra hafa allir áhuga á starfinu. Izudin Daði Dervic þjálfari Leiknis Fásrkúðsfirði er einnig orðaður við Fjarðabyggð.
Veigar Páll er orðaður við Stjörnuna.

Veigar Páll er orðaður við Stjörnuna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viðar Örn Kjartansson er orðaður við nokkur félög.

Viðar Örn Kjartansson er orðaður við nokkur félög.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli Viðar Björnsson er eftirsóttur.

Atli Viðar Björnsson er eftirsóttur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Víkingur Ólafsvík vill fá Gunnleif Gunnleifsson.

Víkingur Ólafsvík vill fá Gunnleif Gunnleifsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Jó er orðaður við KA og Grindavík.

Bjarni Jó er orðaður við KA og Grindavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Gummi Ben er orðaður við Gróttu.

Gummi Ben er orðaður við Gróttu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.