Fotbolti.net
25.09.12 - 19:26
Elvar Geir Magnússon

Eyþór Helgi í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Eyþór Helgi í Víking Ólafsvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Eyþór Helgi Birgisson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Víking Ólafsvík. Þetta staðfesti hann í samtali við vefsíðuna 433.is.

Hann er fysti leikmaðurinn sem Ólafsvíkurliðið fær í sínar raðir síðan það innsiglaði sæti í Pepsi-deildinni fyrir næsta sumar.
Eyþór, sem er fæddur 1989, kemur frá ÍBV þar sem hann lék sjö leiki í sumar. Samningi hans var rift eftir að hann gerðist sekur um agabrot. Í fyrra lék hann með HK í 1. deildinni í og skoraði tíu mörk fyrir liðið.

Eyþór og stuðningsmenn Ólafsvíkurliðsins eiga sína sögu en hann fékk rautt spjald þegar hann lék með HK í fyrra eftir að hafa sýnt stuðningsmönnum Ólafsvíkinga puttann.

Heimild: 433.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.