25.09.12 - 21:32
Elvar Geir Magnússon
Björn Kristinn ráðinn þjálfari HK/Víkings (Staðfest)

Björn Kristinn Björnsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Björn Kristinn Björnsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Björn Kristinn Björnsson var í kvöld ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá HK/Víkingi og fær því það verkefni að stýra liðinu í efstu deild á næsta keppnistímabili.
Þetta kemur fram á vefsíðu HK.
Þetta kemur fram á vefsíðu HK.
Björn tekur við af Sigurði Víðissyni sem hefur þjálfað HK/Víking í sex ár af síðustu sjö og skilaði liðinu upp í úrvalsdeildina í annað sinn á þeim tíma í haust.
Björn er 52 ára gamall Akureyringur og þjálfaði fyrir norðan en síðan hjá Breiðabliki. Árið 2007 tók hann við úrvalsdeildarliði Fylkis og stýrði því í fjögur ár með góðum árangri en undir hans stjórn festi Árbæjarliðið sig vel í sessi um miðja úrvalsdeildina. Það endaði í 5. sæti bæði 2009 og 2010 sem er besti árangur þess í sögunni.
Hann hætti í Árbænum að loknu tímabilinu 2010 og var þá ráðinn þjálfari Selfyssinga, sem unnu sig beint uppí úrvalsdeild á fyrsta ári hans þar. Í ár var hann áfram með Selfossliðið sem kom geysilega á óvart með því að halda sæti sínu meðal þeirra bestu.
Björn er því sá þjálfari sem náð hefur bestum árangri í sögu beggja félaganna sem hann hefur stýrt í meistaraflokki.

Heimild: Heimasíða HK