Kepa Arrizabalaga mun byrja í marki Chelsea gegn West Brom á morgun. Chelsea hefur fengið nýjan markvörð, Edouard Mendy frá Rennes, en Frank Lampard segir að hann komi ekki til greina í markið.
„Hann er ekki að fara að byrja á morgun, það er ekki möguleiki. Hann hefur nánast ekkert æft með okkur," segir Lampard.
Mendy á að veita Kepa samkeppni um stöðuna en Kepa er dýrasti markvörður heims, kostaði 72 milljónir punda þegar hann var keyptur frá Athletic Bilbao 2018.
Á fréttamannafundi í dag sagði Lampard að það væri stutt í að Hakin Ziyech og Christian Pulisic verði orðnir leikfærir en leikurinn á morgun komi aðeins of snemma.
Athugasemdir