Steinþór Már Auðunsson, betur þekktur sem Stubbur, átti stórkostlegt sumar í marki KA.
Lestu um leikinn: KA 2 - 2 FH
Hann er ein af sögum sumarsins í Pepsi Max-deildinni. Hann kom inn í markið hjá KA vegna meiðsla Kristijan Jajalo og leit ekki um öxl eftir það.
Stubbur, sem hefur spilað lengst af með Magna, Dalvík/Reyni og Völsungi á sínum ferli, var einn besti markvörður deildarinnar í sumar.
Hann var ekki bara einn sá besti, hann var sá besti að mati Hallgríms Mar Steingrímssonar, liðsfélaga hans hjá KA.
„Þetta er besti markmaður Pepsi Max-deildarinnar. Punktur. Dont @ me," skrifar Hallgrímur og birtir mynd af Stubbi á Twitter í kvöld.
Lokaumferð Pepsi Max-deildarinnar fór fram í dag. KA hafnaði í fjórða sæti; liðið gerði jafntefli við FH í síðasta leik.
Þetta er besti markmaður pepsi deildarinnar. Punktur. Dont @ me pic.twitter.com/UpR5hK7S9G
— Hallgrímur Bergmann (@hallgrimurmar10) September 25, 2021
Athugasemdir