25.10.12 - 11:00
Daníel Freyr Jónsson
Dougie Freedman tekinn við Bolton (Staðfest)

Dougie Freedman er nýr stjóri Bolton.

Mynd: Getty Images

Dougie Freedman er nýr stjóri Bolton.

Mynd: Getty Images
Bolton hefur staðfðest ráðninguna á Dougie Freedman sem nýjan stjóra liðsins. Hann kemur frá Crystal Palace.
Freedman er ungur og efnilegur þjálfari, einungis 38 ára gamall, og stýrði hann liði Palace í tæp tvö ár.
Hjá Bolton tekur hann við stjórastöðunni af Owen Coyle sem rekinn var fyrr í þessum mánuði eftir slaka byrjun í Championship-deildinni.
Bolton féll á síðustu leiktíð og er ljóst að Freedman fær það verðuga verkefni að reyna að koma liðinu aftur upp í deild þeirra bestu.
Liðið situr í dag í 16. sæti Championship-deildarinnar með 15 stig úr fyrstu 12 leikjunum.