sun 25. október 2020 15:20
Ívan Guðjón Baldursson
Svíþjóð: Aron skoraði í góðum sigri gegn Östersund
Mynd: Getty Images
Östersund 1 - 3 Hammarby
0-1 G. Ludwigson ('53)
0-2 A. Kacaniklic ('62)
0-3 Aron Jóhannsson ('74)
1-3 B. Turgott ('78)

Aron Jóhannsson skoraði þriðja mark Hammarby í góðum sigri á Östersund í sænska boltanum.

Hammarby er í harðri baráttu um Evrópusæti og er sigurinn gegn Östersund afar mikilvægur. Aron hefur sinnt mikilvægu hlutverki í liðinu og er markahæsti leikmaður liðsins í deildinni með 10 mörk.

Leikurinn var nokkuð jafn en gestirnir nýttu færin betur. Staðan var markalaus fram að 53. mínútu þegar Hammarby skoraði öll mörkin sín þrjú á tuttugu mínútna kafla.

Annað og þriðja sæti deildarinnar gefa þátttökurétt í Evrópudeildina á næsta ári. Hammarby er jafnt þremur öðrum liðum með 39 stig í þriðja sæti en liðin í kring eiga öll leik til góða.
Athugasemdir
banner
banner
banner