Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 25. nóvember 2021 16:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hákon og Ísak byrja hjá FCK - Elías á bekknum
Hákon vinstra megin og Ísak hægra megin
Hákon vinstra megin og Ísak hægra megin
Mynd: Instagram/Isak.Bergmann
Klukkan 17:45 hefst leikur Lincoln Red Imps og FC Kaupmannahafnar í Sambandsdeildinni. FCK er á útivelli og í byrjunarliði liðsins má sjá tvo átján ára Skagamenn.

Þeir Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson eru í liðinu en Andri Fannar Baldursson er ekki í hópnum og er skráður meiddur. Með sigri tryggir FCK sig áfram í útsláttarkeppninni.

Sjá einnig:
Bestu vinir, nágrannar á Skaganum og nú saman hjá FCK - „Eiginlega galið"

Gríska liðið PAOK á leik gegn Slovan Bratislava á sama tíma en Sverrir Ingi Ingason er enn fjarri góðu gamni og er ekki í hópnum hjá PAOK.

Í Evrópudeildinni er Elías Rafn Ólafsson áfram á bekknum hjá FC Midtjylland en þetta er annar leikurinn í röð sem Jonas Lössl byrjar.
Athugasemdir
banner
banner
banner