Fotbolti.net
24.11.26 - 18:30
Brynjar Ingi Erluson

Gæti snúið aftur til Bayern vegna meiðsla Kane

Gæti snúið aftur til Bayern vegna meiðsla Kane
Canon

Mynd: EPA

Þýskalandsmeistarar Bayern München íhuga alvarlega að fá kamerúnska framherjann Eric Maxim Choupo-Moting aftur til félagsins út tímabilið.
Kane fór í aðgerð - „Kem ferskur og klár til baka fyrir lokasprett tímabilsins“
TENGT EFNI

Kane fór í aðgerð - „Kem ferskur og klár til baka fyrir lokasprett tímabilsins“

Sky í Þýskalandi segir að Bayern ætli að bregðast við meiðslum Harry Kane, sem verður frá keppni næstu mánuði, og er Choupo-Moting einn þeirra kosta sem hafa verið ræddir innan félagsins.

Choupo-Moting lék með Bayern frá 2020 til 2024 og var afar vinsæll innan leikmannahópsins, en hann er nú á mála hjá New York Red Bulls í Bandaríkjunum.

Samningur hans við bandaríska félagið rennur út um áramótin og er Bayern að skoða þann möguleika að fá hann aftur til félagsins út tímabilið til að fylla skarðið sem Kane skilur eftir sig.

Choupo-Moting er orðinn 37 ára gamall og lék 122 leiki fyrir Bayern þar sem hann skoraði 38 mörk.

Á ferlinum hefur hann einnig leikið með franska stórliðinu Paris Saint-Germain, auk Mainz, Hamburger, Schalke, Nürnberg og Stoke City.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.