24.11.26 - 18:40
Brynjar Ingi Erluson
Mikil gleðitíðindi fyrir Tottenham

Mynd: Tottenham Hotspur

Mynd: Tottenham Hotspur
Enski táningurinn Luca Williams-Barnett hefur skrifað undir langtímasamning við Tottenham, aðeins nokkrum dögum eftir að hafa farið á kostum í 2-0 sigri liðsins á Ipswich Town í ensku úrvalsdeildinni.
Williams-Barnett er 18 ára gamall vængmaður sem er talinn einn efnilegasti leikmaður Englands.
Hann er eitt mesta efnið sem komið hefur úr akademíu Tottenham undanfarin ár og eru miklar vonir bundnar við hann hjá félaginu.
Um helgina sýndi hann svo sannarlega hvað í honum býr þegar hann skoraði og lagði upp mark gegn Ipswich í sínum fyrsta byrjunarliðsleik. Nú hafa stuðningsmenn Tottenham fengið enn meiri gleðitíðindi, en félagið hefur tryggt sér krafta hans til langs tíma.
„Þetta er mjög sérstök stund fyrir mig og fjölskyldu mína. Ég hef lagt ótrúlega hart að mér til að komast hingað, en þetta er bara byrjunin.“
„Spurs er eins og önnur fjölskylda fyrir mig. Ég hef verið hér svo lengi að þetta er orðið mitt annað heimili. Ég treysti fólkinu hér og þjálfurunum sem hafa hjálpað mér að verða sá leikmaður sem ég er í dag.“
„Félagið hefur sýnt mér mikið traust og haft trú á mér. Nú er komið að mér að endurgjalda það,“ sagði Williams-Barnett við undirskrift.

We are delighted to announce that Luca Williams-Barnett has signed a new contract with the Club.
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) November 24, 2026
Congrats, Luca ????
???? https://t.co/Ih7y5K9Grh https://t.co/UJq6mCNBDR