Fotbolti.net
24.11.26 - 18:17
Brynjar Ingi Erluson

„Hefði aldrei átt að hleypa honum út úr byggingunni“

Rio Ngumoha

Rio Ngumoha

Canon

Mynd: EPA

Nicky Butt, fyrrum leikmaður Manchester United, sagði áhugaverða sögu í hlaðvarpsþættinum The Good, The Bad and The Football.
Þar ræddi hann um hinn unga og efnilega Rio Ngumoha, sem gekk til liðs við Liverpool frá Chelsea árið 2024, þá aðeins 15 ára gamall.

Árið áður hafði Ngumoha skoðað aðstæður hjá Man Utd og á Butt erfitt með að skilja hvernig félaginu tókst að missa af honum, sérstaklega í ljósi þess að hann og fjölskylda hans halda með United.

„Hann er gríðarlegur stuðningsmaður Man Utd og það er öll fjölskyldan hans líka. Ég held að hann hafi verið 13 eða 14 ára, eða eitthvað í þá áttina, þegar hann fór að skoða aðstæður hjá United, hvort sem það var á Old Trafford eða Carrington-æfingasvæðinu.“

„Hann fer þangað með fjölskyldunni, skoðar félagið og ákveður svo að fara til Liverpool. Hann valdi Liverpool þrátt fyrir að halda með Man Utd.“

„Það hefði ekki átt að leyfa honum að fara út úr byggingunni án þess að skrifa undir samning. Þetta hefði aldrei átt að gerast.“

„Mig langar að vita hver tók á móti honum og sýndi honum aðstöðuna. Hver var að útskýra fyrir honum hvernig hlutirnir ganga fyrir sig hjá félaginu? Ég hefði haldið að þeir hefðu fengið Wayne Rooney, Paul Scholes eða Ryan Giggs til þess,“
sagði Butt um Ngumoha.

Scholes staðfesti hins vegar að hann hefði ekki verið fenginn til að taka á móti Ngumoha í heimsókninni.

Ngumoha valdi að lokum Liverpool og hefur heldur betur látið til sín taka þar. Hann hefur verið að gera frábæra hluti og er þegar búinn að tryggja sér sæti í enska landsliðshópnum.

Samkvæmt enskum miðlum er hann nú nálægt því að framlengja samning sinn við Liverpool og stefnir því allt í að félagið tryggi sér krafta hans til lengri tíma.
Nicky Butt er ekki sáttur með að Ngumoha hafi farið til Liverpool

Nicky Butt er ekki sáttur með að Ngumoha hafi farið til Liverpool

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.