25.12.18 - 19:25
Brynjar Ingi Erluson
Quique Sanchez Flores tekur við Shanghai Shenhua (Staðfest)

Quique Sanchez Flores

Mynd: Getty Images

Quique Sanchez Flores

Mynd: Getty Images
Spænski þjálfarinn Quique Sanchez Flores er tekinn við kínverska félaginu Shanghai Shenhua.
Flores hefur verið án vinnu síðan í apríl en þá var hann látinn taka poka sinn hjá Espanyol eftir tvö ár í starfi.
Hann hefur þjálfað lið á borð við Watford og Benfica en fær nú tækifæri til að koma Shanghai Shenhua í gang í kínversku deildinni.
Hann tekur við af Wi Jingui sem tekur við sem yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu.
Shenhua vann bikarkeppnina í Kína árið 2017 en í deildinni endaði liðið 30 stigum á eftir Shanghai SIPG sem vann deildina.