26.01.18 - 19:30
Elvar Geir Magnússon
Ágúst Freyr í Leikni (Staðfest)

Ágúst Freyr Hallson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Freyr Hallson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Freyr Hallson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Leikni Reykjavík en þetta kemur fram á heimasíðu Breiðholtsfélagsins.
Ágúst hefur spilað fyrir HK í 1. deildinni undanfarin þrjú ár. Hann skoraði eitt mark í níu leikjum í deildinni í fyrra en það var sigurmark gegn Leikni.
Ágúst er 23 ára sóknarleikmaður, áður en hann fór til HK lék hann með Ægi í Þorlákshöfn og þar á undan Víkingi Reykjavík.
Ágúst getur leikið sinn fyrsta leik í kvöld þegar Leiknir tekur á móti Víking í Egilshöllinni klukkan 21:00.
Á dögunum fékk bakvörðurinn Hilmar Þór Hilmarsson félagaskipti í Leikni. Hann hefur síðustu tvö ár spilað með Þrótti Vogum í 3. deildinni en þar áður var hann í Gróttu.