26.01.18 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Átján skrifa undir samning við Hött (Staðfest)

Mynd: Höttur

Mynd: Höttur

Mynd: Höttur
Það vantaði ekki liðsandann þegar nánast allur hópur Hattar á Egilsstöðum skrifaði undir tveggja ára samninga við félagið á þriðjudaginn.
Höttur mun aftur leika í 2. deildinni eftir að hafa bjargað sér frá falli síðasta sumar.

Átján leikmenn Hattar skrifuðu undir samninga og má þar helst nefna Brynjar Árnason fyrirliða, Kristófer Einarsson og Halldór BJarka Guðmundsson.
Þá framlengdu Serbarnir Aleksandar Marinkovic og Petar Mudresa einnig sína samninga.
Auk þeirra skrifuðu Guðþór Hrafn Smárason, Arnar Eide Garðarsson, Valgeir Jökull Brynjarsson, Jóhann Ingi Magnússon, Jónas Pétur Gunnlaugsson, Brynjar Þorri Magnússon, Sigurður Orri Magnússon, Erlingur Gísli Björnsson, Heiðar Logi Jónsson, Sölvi Víkingur Heiðarsson, Guðjón Ernir Hrafnkelsson, Sæbjörn Guðlaugsson og Jakob Jóel Þórarinsson undir, en langflestir eru enn á 2. flokks aldri.
„Þetta er ungur og spennandi leikmannahópur og fullt af strákum að koma upp á næstu árum sem munu festa sig í sessi í liði Hattar,“ segir Guðmundur Bj. Hafþórsson, formaður rekstrarfélagsins.