Fotbolti.net
26.01.18 - 08:22
Magnús Már Einarsson

Guðjón Baldvins til Kerala Blasters (Staðfest)

Guðjón Baldvins til Kerala Blasters (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðjón Baldvinsson, framherji Stjörnunnar, hefur gengið til liðs við Kerala Blasters í indversku ofurdeildinni á lánssamningi fram í lok mars.

Eftir smá óvissu er ljóst að Guðjón getur gengið til liðs við Kerala Blasters á stuttum lánssamningi áður en hann snýr aftur til Stjörnunnar fyrir Pepsi-deildina í sumar.
David James, fyrrum markvörður enska landsliðsins, er þjálfari Kerala Blasters og Hermann Hreiðarsson var á dögunum ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins.

Dimitar Berbatov, fyrrum framherji Manchester United og Tottenham, er á mála hjá Kerala Blasters en hann og Guðjón leika saman í fremstu víglínu ef félagaskiptin ganga í gegn.

Kerala Blasters er í 7. sæti af tíu liðum í deildinni en Wes Brown fyrrum varnarmaður Manchester United er einnig á mála hjá félaginu.

Hinn 31 árs gamli Guðjón skoraði tólf mörk í nítján leikjum í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar. Fyrsti leikur hans með Kerala Blasters verður mögulega gegn Delhi Dynamos á morgun.

Sjá einnig:
Indverskir aðdáendur hrannast inn hjá Guðjóni á Instagram

Lánssamningur Stjörnunnar og @KeralaBlasters hefur verið staðfestur. Við óskum @Gauib góðs gengis í Indlandi en hann mun snúa aftur til Stjörnunnar í lok mars. #InnMedBoltann pic.twitter.com/zhFYeQcXla

— Stjarnan FC (@FCStjarnan) January 26, 2018

Thank you for your warm welcome. So happy to be in India for the next months, true honour to play with @KeralaBlasters a big club with a big heart, very excited for the future 🙌 #IncredibleIndia #HeroISL

— Guðjón Baldvinsson (@Gauib) January 26, 2018

The 1st Icelandic player to feature in @IndianSuperLeague. Lethal in front of goal, he comes on loan from @FCStjarnan , with experience facing few of the very best in @EuropaLeague. He's here, he's ours! എന്നാ പേര് പഠിച്ചോളീൻ! #KeralaBlasters #NammudeSwantham #IniKaliMaarum pic.twitter.com/1gGOGYrZHa

— Kerala Blasters FC (@KeralaBlasters) January 26, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.