26.01.18 - 16:20
Elvar Geir Magnússon
Joao Mario til West Ham (Staðfest)

Joao Mario á 31 leik fyrir portúgalska landsliðið.

Mynd: West Ham

West Ham hefur fengið portúgalska landsliðsmanninn Joao Mario lánaðan út tímabilið frá Inter á Ítalíu.
Þessi 25 ára sóknarmiðjumaður er í leikmannahópi West Ham sem mætir Wigan í bikarkeppninni á morgun.

Hann lék í öllum sjö leikjunum á EM 2016 þar sem Portúgal stóð uppi sem sigurvegari.
„Ég er mjög ánægður með að vera hérna. Það er ótrúleg reynsla að ganga í raðir þessa ótrúlega félags,\" segir Mario.
Eftir að hafa spilað 33 sinnum á síðasta tímabili hefur Joao Mario spilað í fjórtán leikjum í ítölsku A-deildinni á þessu tímabili.
Hamrarnir hafa misst Manuel Lanzini í sex vikna meiðsli en hann er algjör lykilmaður og á Mario að fylla skarð hans. Meiðsli herja á leikmenn West Ham en Marko Arnautovic spilar ekki á næstunni vegna meiðsla aftan í læri og þá er Andy Carroll aftur kominn á meiðslalistann.

Here we go. #WelcomeMario pic.twitter.com/NkGInrbr2c
— West Ham United (@WestHamUtd) January 26, 2018