Fotbolti.net
26.01.18 - 10:22
Magnús Már Einarsson

Rasmus áfram hjá Val (Staðfest)

Rasmus Christiansen.

Rasmus Christiansen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Danski varnarmaðurinn Rasmus Christiansen hefur framlengt samning sinn við Val til tveggja ára.

Rasmus varð samningslaus í október og nokkur félög í Pepsi-deildinni sýndu honum áhuga. Þar á meðal var ÍBV sem Rasmus lék með fyrir nokkrum árum.
Á endanum ákvað Rasmus að gera nýjan samning við Íslandsmeistara Vals.

„Rasmus er ekki bara góður knattspyrnumaður heldur er hann líka öflugur liðsmaður, leiðtogi og góð fyrirmynd,\" segir í tilkynningu á Facebook síðu Vals.

„Það er okkur Valsmönnum mikil ánægja að Rasmus hafi framlengt samning sinn við félagið til næstu tveggja ára.\"

Rasmus spilaði þrettán leiki með Val í Pepsi-deildinni í fyrra. Hann var í byrjunarliðinu í upphafi móts en Eiður Aron Sigurbjörnsson náði síðan stöðunni af honum.

Valur seldi miðvörðinn Orra Sigurð Ómarsson til Sarpsborg í vikunni en líklegt er að félagið bæti við miðverði eftir brotthvarf hans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.