Alexander Rafn Pálmason, leikmaður KR, virðist vera búinn að ákveða sitt næsta skref á ferlinum, hann mun líklega ganga í raðir danska Nordsjælland þegar hann hefur aldur til.
Hjörvar Hafliðason sagði frá þessu í Dr. Football og það rímar við heimildir Fótbolta.net. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net yrði Alexander Rafn með þessum félagaskiptum dýrasti leikmaður sem danskt félag hefur keypt frá Íslandi og yrði þetta metsala hjá KR.

Alexander Rafn er 15 ára fjölhæfur leikmaður sem varð í fyrra yngsti leikmaður í sögunni til þess að spila í efstu deild á Íslandi. Á þessu ári varð hann svo sá yngsti til þess að byrja leik og sá yngsti til þess að skora.
Hann hefur líka farið á reynslu til FC Kaupmannahafnar og Real Sociedad og höfðu þau áhuga á því að fá hann í sínar raðir. Einnig hefur heyrst af áhuga stórliðanna Ajax og Dortmund.
Alexander Rafn, sem er sonur fyrrum atvinnu- og landsliðsmannsins Pálma Rafns Pálmasonar, á að baki sex ungingalandsleiki.
Hjá Nordsjælland er annar efnilegur Íslendingur, en Skagamaðurinn Daniel Ingi Jóhannesson, sem fæddur er 2007, er á mála hjá félaginu. Nordsjælland er þekkt fyrir öfluga akademíu og er félagið duglegt að veita ungum leikmönnum tækifæri með aðalliði sínu.
Athugasemdir