Fotbolti.net
26.06.26 - 18:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Sá dýrasti í sögu Milan

Sá dýrasti í sögu Milan
Canon

Mynd: EPA

Goncalo Ramos er á leið til AC Milan frá PSG fyrir metfé. Hann kostar meira en Milan keypti Rafael Leao fyrir frá Lille árið 2019.

Hvorki The Athletic né Fabrizio Romano segir frá kaupverðinu en það er mun hærra en 50 milljónir evra sem félagið keypti Leao fyrir.
Ramos verður fyrsti leikmaðurinn sem Ruben Amorin fær til félagsins en þessi fyrrum stjóri Man Utd tók við af Massimiliano Allegri fyrr í þessum mánuði.

Hann mun fara í læknisskoðun í Bandaríkjunum þar sem hann er staddur með portúgalska landsliðinu á HM.

Ramos er dýrasti leikmaður ítöslsku deildarinnar síðan Romelu Lukau gekk til liðs við Inter frá Man Utd fyrir 74 milljónir evra árið 2019.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.