Fotbolti.net
26.06.26 - 16:55
Elvar Geir Magnússon

Forseti Ekvadors lýsti yfir frídegi eftir sigurinn á Þýskalandi

Það er stuð og mikil stemning í Ekvador.

Það er stuð og mikil stemning í Ekvador.

Canon

Mynd: EPA

Það er taumlaus gleði í Ekvador í dag en forsetinn Daniel Noboa lýsti yfir frídegi eftir sigurinn gegn Þýskalandi á HM í gær.

Ekvador lenti undir í leiknum en með mörkum Nilson Angulo og Gonzalo Plata náði liðið að snúa dæminu við og tryggja sér sæti í 32-liða úrslitum.

Noboa var í heiðursstúkunni á MetLife vellinum þar sem leikurinn fór fram.
Maður dagsins á HM - Argentínski spaðinn sem stýrir gullkynslóðinni
TENGT EFNI

Maður dagsins á HM - Argentínski spaðinn sem stýrir gullkynslóðinni

„Ég vil þakka þjálfurunum og leikmönnum fyrir, þrátt fyrir að hafa gengið í gegnum erfiðleika náðu þeir að svara og færa þjóðinni þessa miklu gleði. Á morgun er frídagur! Lengi lifi Ekvador!" skrifaði Noboa á samfélagsmiðla eftir leikinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.