Ceballos riftir við Real Madrid (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Real Madrid og Dani Ceballos hafa komist að samkomulagi um að binda enda á samning spænska miðjumannsins við félagið.
Ceballos er 29 ára miðjumaður en hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.

Hann gekk til liðs við Real Madrid frá Betis árið 2017 og spilaði 215 leiki og skoraði sjö mörk. Hann kom við sögu í 23 leikjum á síðustu leiktíð.
Hann vann fimmtán titla hjá Real. Þar á meðal spænsku deildina tvisvar, Meistaradeildina þrisvar og spænska bikarinn einu sinni.
Hann var á láni hjá Arsenal tímabilið 2019-2020 þegar liðið varð enskur bikarmeistari.