26.07.02 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Yorke farinn til Blackburn. (Staðfest)
Blackburn Rovers hafa náð samkomulagi við Manchester United um að kaupa framherjann Dwight Yorke. Man Utd vildi fá 6 milljónir punda fyrir Yorke sem hefur ekki verið í náðinni hjá Alex Ferguson síðastliðið ár, þrátt fyrir það mun Blackburn aðeins greiða 2 milljónir punda sem hækka í 2,6 milljónir eftir frammistöðu Yorke. Síðasti alvöruleikur Yorke hjá Man Utd var tapleikur í FA bikarnum gegn Middlesborough í janúar síðastliðnum. Man Utd keypti Yorke á 12,6 milljónir punda frá Aston Villa í ágúst 1998 en það þótti ljóst að Yorke léki ekki með liðinu á næsta tímabili þegar hann fékk ekki einu sinni númer þegar númer leikmannanna voru tilkynnt. Hjá Blackburn mun Yorke hitta fyrir annan fyrrum félaga sinn hjá Man Utd, Andy Cole en saman skipuðu þeir eina hættulegustu framlínu enska boltans á sínum tíma með Man Utd t.d. skoruðu þeir saman 53 mörk er liðið vann þrefalt árið 1999.
