26.07.12 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Lille fær hægri bakvörð frá Troyes (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Franska liðið Lille hefur fengið franska hægri bakvörðinn Djibril Sidibe frá Troyes.
Sidibe, sem er 19 ára gamall gekk til liðs við Troyes aðeins átta ára gamall árið 2000 og hefur verið partur af U20 ára lið franska landsliðsins en hann þykir einn efnilegasti hægri bakvörður landsins.
Hann skrifaði undir fimm ára samning við Lille í gær, en þetta gefur sterklega til kynna að franski bakvörðurinn Mathieu Debuchy sé á förum frá félaginu.
Debuchy, sem er 26 ára gamall, var lykilmaður í franska liðinu á Evrópumótinu í Póllandi og Úkraínu í sumar, en talið er að Newcastle sé að festa kaup á honum.
Lille sagði fyrr í sumar að það væri ekki reiðubúið til þess að selja Debuchy, nema að félagið myndi finna staðgengil hans. Það hefur nú verið gert og má því búast við því að franski bakvörðurinn sé á förum frá félaginu.

Heimild: Sky